Allt Er Þegar Þrír Er
2017 Vinyl
Pop Rock
Folk

Main image
contrabass Sigurbjörg María Jósepsdóttir
drums Þórdís Claessen
mastered by Finnur Hákonarson
recorded by, mixed by Daniel Pollock
vocals, guitar Jón Torfi Arason
Fyrsta plata hljómsveitarinnar Þrír ber titilinn „Allt er þegar Þrír er“ og skartar ellefu frumsömdum lögum. Hljómsveitarmeðlimir eru þrír en tveir þeirra eru frá Stykkishólmi. Hljómsveitin hefur oft komið fram í Stykkishólmi og nágrenni og er því Hólmurum vel kunn.

Platan var tekin upp í hljóðverinu Tónaslóð undir vökulu auga upptökumeistarans Daniels Pollock á vordögum 2015. Verkið inniheldur alls 11 frumsamin lög og þar af eru 2 lög vel yfir 3 mínútur að lengd!

Já, hljómsveitin Þrír er tríó.
Þar plokkar hin geðþekka Sigurbjörg kontrabassastrengi undir næmum áslætti Þórdísar trymbils á meðan hinn íturvaxni Jón Torfi leikur á gítar og syngur allskyns ástarþvælu og ádeilusöngva.